04. janúar 2008 klukkan 03:57
Já gleðilegt ár væri vægast sagt að segja þessa dagana, og er síðasta færsla skrifuð hér niður haustið 2007, en nú verður breyting á þar sem ég lofa sjálfum mér og öðrum að vera duglegri við að blogga en ég hef verið undanfarna mánuði. Maður er nú að breytast í algjöran "fokkmadur" hérna.. ef að kunnugir kannast við.
Já árið var kvatt með annálum, skaupi, almennri drykkju og skrípalátum, sem byrjaði allt á því að maður kíkti í áramótamatinn á torginu að venju og hitti þar ættingjana þar sem að drykkja hófst formlega með rólegum hætti, síðan þegar á skaupið leið var maður orðinn nokkuð vel í glasi, og þótti mér skaupið bara nokkuð gott þetta árið, margt skondið sem bar á þófa og skeljar þar á bænum. Baukurinn var síðan áfangastaður númer tvö, með stuttri viðkomu í bíl Hafþórs á Héðinshöfða/Árholti þar sem öllarar voru sopnir af allnokkri áfergju, og skundaði maður á fjórum hjólum niður á bauk eftir það, þar sem að margt var um manninn, og hitti ég þar mann sem heitir einhverju fornaldarnafni og spjallaði við hann nánast alla nóttina og einhverja vini hans, ómögulegt er fyrir mig að muna hvað þessi ágæti drengur heitir.
þess er skemmst að minnast að ákveðin er ferð til Southampton og Lundúna eftir tæpar þrjár vikur, þar sem verður margt um manninn á skemmtistöðum og öðrum stöðum sennilega líka, þar sem ferðinni er heitið til þessarra borga til að sjá Alter Bridge á tónleikum, sem verður án efa hin mesta skemmtun og nokkrir breskir öllarar sopnir þar sennilega, á uppsprengdu verði.
Ég er nú ekki góður í áramótaannálum en ég ætla að koma með smávegis svona ef ég get frá árinu 2007
Röflari ársins: Þennan titil hlítur án efa hinn góði félagi minn Ásgeir fyrir að geta ávallt fundið leið til að röfla yfir nákvæmlega öllum hlutum sem að gerast í kringum hann, jafnvel þótt ekkert ætti að finnast til að röfla yfir
Innipúkar ársins: Þennan titil hljóta bæði Heiðar og Snædís fyrir að gera ekkert annað en að hanga saman allar mínútur sólahringsins.. Alltaf gaman að heyra Hez tala um hvað Bjarni og frú eru mikið saman og aldrei á djamminu, exactly the same for them ;) fyrir utan að Hez og frú djamma öörlítið meira ;)
Fótboltalið ársins: Titilinn á englandi hlítur mitt eigið lið Manchester United og á Íslandi hlýtur hið stórbrotna lið KR að eiga þennan titil fyrir stórkostlegan og afberandi árangur á árinu.
Áramótaheit 2007: Mitt (engin orð um það meir)
Seinn ársins: Heiðar Hrafn hlítur að eiga þennan titil með rentu, þar sem hann mætti seint í ALLT nema vinnuna á þessu ári, þó sérstaklega fótboltaleiki, og hefur hann sennilega séð marga leiki með sínu liði á því ári 2007, nema alla leikina sá hann sennilega eftir 30. mínútu leiksins ;) Karl Hannes kom þó nálægt Hez í þessum efnum.
Stolt ársins: Karl Hannes (sonni) hlítur þessi verðlaun að þessu sinni, fyrir að reka við að meðaltali 45 sinnum á dag og ropa í hið minnsta 70 sinnum á dag og vera ekkert nema stoltið yfir því, enda veiddi maðurinn vel út á það að vera eins ógeðslegur og hægt er ;)
Niðurrakkari ársins: Karl Hannes hlítur þennan titil án efa, þar sem hann er duglegur við niðurrakk við minnsta tilefni (ath. einungis í glasi)
Staður ársins: Sennilega stofan hjá Finnz, en hún var óspart notuð undir drykkju og dvd gláp árið 2007
Leiðindi ársins: sennilega staðsetning mín í ákveðnu glerbúri tengt Háskólanum á Akureyri, sem var einstaklega mikið notað undir próflærdóm.
Drykkjumaður ársins: Nóri fær þennan titil af nokkru öryggi fyrir að velja hina ýmsu daga til drykkju. Ritstjóri fær þann heiður að vera nálægt í öðru sæti.
Plön ársins: Arnór (Nóri) fær þau verðlaun einnig, fyrir að hafa alltaf gríðarleg plön í framkvæmdum, plön sem hann framkvæmir ávallt ;)
Íþróttamaður ársins: Ritstjóri fær þennan heiður að vera íþróttamaður ársins, sennilega fyrir þær sakir að hafa farið tvisvar í fótbolta á árinu og mætt einu sinni í ræktina á Akureyri ;)
Setning ársins: Karl Hannes fær þessi verðlaun, og mun sú setning hljóma "ertekkað grííínaaaast!"
Jæjja nóg í bili
leifðu mér að hugsa..... uuuu JÁ!